Setti mig í spor apatemjara í dag. Ég hef ákveðið að fara ekki með úlfinn í Smáralindina eða Kringluna fyrr en ja hann verður allavega 3ja ára og hægt er að skilja hann eftir í barnapössun í ævintýralandinu. Fór með hann þangað og hann fékk að leika lausum hala í allskonar búrum með boltum og [...]
Ég er meiri vor- en haustmanneskja. Finnst skemmtilegra að sjá tréin og blómin rembast við að springa út og stækka, heldur en þegar þau byrja að fella laufin og leggjast í dvala eða drepast. Mamma mín legst í hýði og þarf áfallahjálp þegar fyrsta næturfrostið skellur á og eyðileggur bláberin hennar. Hinsvegar haustið alltaf dálítið [...]
Þegar ég var yngri (gerist nú líka enn) sagði mamma oft við mig: þú ert vitni að ég slökkti á eldavélinni, eða þú ert vitni að ég tók straujárnið úr sambandi, og þú ert vitni að ég læsti. Jæja gott fólk nú eruði vitni að því að ég er hætt að naga neglurnar!!! Hræðilegt að vera [...]
Sko ég væri ótvíræður sigurvegari ef það væri til ljótukaktusakeppni. Getur einhver sagt mér hvaða göndlar þetta eru sem vaxa út úr kaktusnum??? Er farin að halda að þetta sé einhverskonar afkvæmi geimveru og þykkblöðungs :p
Þetta er menningarlegi sonur minn að lesa á kamrinum þessa dagana. Herramannabækurnar. Bósi Ljósár og Bubbi Byggir eru diggir hlustendur á þessum hátíðlega upplestri. Vinsælasta bókin er Herra Hnýsinn.
Er með sýningu í bókasafninu í Hveró…… aðallega feitir fuglar og huldufólk. Er allt of feimin til að hafa einhverja kokteilopnun og vesen…… þetta er bara þarna…. og svo er auðvitað alltaf heitt á könnunni hjá mér ef einhver vill reka við :)
Ætla að vera duglegri að setja inn allskonar myndir. Sérstaklega þar sem Sigga litla systir mín er að flýja land og auðvitað Tollinn minn líka. Fór til Ingu ömmu minnar í gær. Hún er 103ja ára, 104 á þessu ári. Meira um það hérna. (2. júlí).
„Er mamma Grýla?“ spurði 2ja ára sonur minn mig í morgun. Þetta er annar morguninn á nokkrum vikum þar sem hann byrjar á því að spyrja mig þessara skemmtilegu spurningar. GRÝLA!!!!! Þá vitiði hversu óskaplega morgunfögur ég er. Ég lít semsagt út eins og 13 barna (jólasveina) móðir og tröllskessa sem étur óþekk börn!!! Sem [...]
Þessa dagana kemst lítið annað að en að róta í gróðrinum. Er orðin svo svakalega mikil kerling að ég á orðið garðyrkjusvuntu og veski. Sömuleiðis er ég meðlimur í Garðyrkjufélagi Íslands, bý í Hveragerði og horfi á BBC blóma- og grænmetissýningar í HD. Hérna er fyrsti kúrbíturinn sem kom úr gróðurhúsinu í gær. Tolli er [...]
Vildi bara deila með ykkur hvað ég var fín þegar ég fór út í garð í morgun. Var í fjólubláu gúmmítúttunum mínum sem ég keypti í Vestmannaeyjum einhverntíma á tuttugustu öldinni. Sýnist mér ekkert veita af smá brúnkukremi – þá myndu skórnir njóta sín mun betur.
Sko það er ekkert hægt að vera að blogga þegar veðrið er svona gott. Og svo kom rigning og þá var maður enn glaðari og ég góndi bara á plönturnar mínar spíra og gleðjast. Er að verða meiri kerling með hverjum deginum. Ég er ekki búin að sjá Sex & the city myndina. Enda ekki [...]
Úlfurinn skundaði í skólann í morgun bleyjulaus. Tókum með stóran poka fullan af auka fötum. Búinn að æfa sig heima með frábærum árangri þ.e hann hefur bara pissað á gólfið en ekki í sófann – og ekki kúkað !!! Við vorum að leggja honum reglurnar að hann ætti núna að pissa í klósettið og hann [...]
Laugardagsmorgunn kl. 6.30: Úlfur kemur uppí rúm til foreldra sinna. Með í för er stór tré sílafónn og trommukjuðar. Hlammar þessu á milli þeirra og byrjar að spila tónverkið „drulliðykkurálappirmammaogpabbiþaðerlaugardagurogþiðmegiðallsekkisofaút“!!!!
Vissum að það verði grillpartý útum allan bæ í kvöld. Það eru allir svo glaðir með handtökurnar – svona svipuð stemming og að vinna í júróvision eða handboltanum og það hríslast um mann einhver einkennileg sælutilfinning. Held ég kæli mér bara bjór.
Ég er ofboðslega mikill klaufi að mála mig (eins og ég nefndi áður) nema að setja á mig maskara. Held samt að ef maskarinn væri með innbyggðum titrara myndi ég missa augun. Nú eru nýjustu maskararnir víst farnir að titra og augnhárin verða víst bara eins og á Bamba, svo löng að það kemur rok [...]
Hver nennir að lesa svona blogg þegar þeir geta verið að lesa skýrslu rannsóknarnefndarinnar? Þetta er víst eins og besti reifari og eru nýjir glæpir á hverri síðu. Fær væntanlega verðlaun fyrir bestu glæpasögu Evrópu 2010. Svo eru auðvitað kápurnar afspyrnu flottar og fallegar og smekklegar og glæsilegar ……. winkwink oinkoink ;) Annars hefur svakalega [...]
Var að tala við Siggu systur og við erum sammála við þooooolum ekki mont á feisbúkk. Langar að lemja fólk sem gerir ekki annað en að grobba sig af armbeygjum, ræktarferðum, þrifnaðaræði og prjónaskap. Svo ég ætla í staðinn að monnta mig hérna hjá mér bara. Montimontimonn liggaliggaláááiii. Hver hefði trúað því að sælgætisgrísinn ég [...]
Þurfti að fara á spítala áðan útaf ennisholusýkingu sem er búin að malla í mér lengi lengi. Hélt ég gæti nú tæklað þetta með allskonar töfrabrögðum sjálf en allt kom fyrir ekki. Það var ekki fyrr en ég hélt að hægra augað í mér myndi annað hvort detta úr hausnum á mér eða ég myndi [...]
Amma mín segir alltaf að henni líði eins og nýhreinsuðum hundi ef henni líður vel. Nú vona ég að ég verði eins og nýhreinsaður hundur eftir 24 daga. Er búin að vera í kroppahreinsun, semsagt að hætta að borða allt sem er skemmtilegt eins og glútein, mjólk, áfengi, kaffi, E-efni, skordýraeitur og þessháttar. Þetta er [...]
Er komin í skúringaverkfall. Held það sé auðveldara að rífa bara parketið af reglulega. Drengurinn kemur heim og nær alltaf ALLLLLLTAF að hella einhverju í gólfið og ef það er ekki hann þá ælir kötturinn eða ég sjálf missi heila skyrdollu í gólfið. Sérstaklega erfitt var að ná bingókúlulakkrísslefi og svo gömlum banana úr gólfinu [...]










Recent Comments