Eftir að maður á barn verður maður auðvitað að senda svona égáfallegastabarníheimimontmynd á ættingja og vini. Jæja og nú byrjar ballið. þriðji dagurinn í dag þar sem við ætlum að reyna að ná sæmilegri mynd í jólakortið þetta árið. Þökkum guði fyrir digital myndavélar. Færum á hausinn að taka á filmur og framkalla svo allt draslið.
Þetta gengur álíka vel eins og að taka mynd af apa í góðu skapi. Ekki sjéns að láta hann vera með jólahúfu eða vera kyrr í smá stund. Og svo loksins er hann kyrr þá byrjar horinn að leka niður, hann fer að bora í nefið eða út í horn að kúka.
Ekki eru kettirnir skárri. Setja upp þvílíkan ýldusvip þegar ég ætla að reyna að ná krúttlegum myndum af þeim með jólahúfur eða jólasveinaskegg (já ég á svoleiðis á þá). Hérna er smá sýnishorn úr töku eitt.











Fann nú ekki nákvæmlega “strippið” sem ég var að leita að en þessi er góður líka http://www.kevinwolf.com/images/calvin_hobbes.jpg