Ég er afskaplega ljúf held ég og alveg sérstaklega umburðarlynd (eða svo segir Sigga systir) og verð sjaldan reið og ég hata að rífast. En ef ég verð reið þá verð ég reið. Varð svo reið í nótt að ég sá rautt. Einhver auli ákvað að opna hurð á húsinu klukkan þrjú og við það fór viðvörunarkerfið í gang. Hefði hjólað í viðkomandi og barið hann í harðfisk ef ég hefði séð til hans (hefði orðið jafn reið og í Birmingham um árið).
Eitt það ógeðslegasta sem ég veit er þegar er ráðist inní friðhelgi heimilis grrrrrrrrrrr sem betur fer á ég ekki byssu.
Ætlaði aldrei að geta sofnað aftur og er því sérstaklega fögur í dag með bauga niður á maga. Úlfur vaknaði líka og ég veit ekki hvort hann var hræddari við sírenuna eða gribbusvipinn á mömmu sinni en hann ætlaði heldur ekki að geta sofnað aftur.
Kettirnir fengu næstum ræpu af hræðslu við sírenuhljóðin greyin og eiga alveg sérstaklega bágt núna. Ósofnir og þurfa svo að fara út að spræna í þetta viðbjóðsveður.









