Hvað sagði ég í fyrra????
Þetta hér……
Er ekki betri núna og stóð ekki við að kaupa gjafirnar og gera allt í október…… er komin með jóladrullusting finnst ég eiga eftir að gera svo margt.
Er með fólk á feisbúkk og þar eru allir að grobba sig yfir að vera búnir að kaupa gjafirnar og þeir eru að hafa það huggó með jólaöl og búnir að senda kortin og eru á leiðinni í jólahlaðborð eða á tónleika. Bang bang bang grrrrrrrrrrr……
Gerilistinn minn hljómar einhvernveginn svona (fyrir utan vinnu og daglegt stúss):
Þvo glugga að innan (kexklessur á neðstu gluggunum og bananar)
Skúra uppi og niðri (eftir að vera búin að ryksuga og greiða köttunum)
Þrífa ísskápinn (bugast bara við að hugsa um það)
Skreyta
Leysa jólaseríuflækjur
Reyna að laga jólaseríurnar
Kaupa nýjar seríur
Bóna bílinn
Þrífa bílinn að innan (sýnist ég þurfa háþrýstidælu og ferð á Sorpu eftir það verkefni)
Kaupa jólatré (Tolli vill risa tré sem á að standa við stigann og ná uppá næstu hæð)
Leigja kranabíl undir jólatréð
Kaupa meira jólaskraut
Skrifa út reikninga
Útbúa skemmtiatriði fyrir ættarjólaballið (ofsakvíðakast í aðsigi)
Kaupa jólamat og áramótamat og allskonar mat (prófa kannski að fara full út í búð eða sendi bara Tolla)
Henda öllum af feisbúkk sem eru búnir að öllu fyrir jólin
Föndra jólakortin
Finna heimilisföng og skrifa á öll jólakortin
Kaupa frímerki og senda allt draslið (vonandi fyrir jól)
Baka
Föndra
Brosa
Finna til jólafötin (ath. hvort þau séu laus við matarslettur og krumpur)
Kaupa gjafirnar
Skrifa aftur út hærri reikninga
Pakka inn gjöfunum
Gefa smáfuglunum
Fara í jólaklippingu
Þrífa bæði klósettin, baðið og sturtuna (andvarp)
Baka meira
Binda Úlf við sjónvarpssófann svo hann drasli örugglega ekki meira til fyrir jól
Jæja best að koma sér að verki.
Góðar stundir










Uss uss, alger óþarfi að missa sig í neinu stressi…ég þekki nokkur óbrigðul ráð við mörgum þessara vandræða:
Þvo glugga að innan (kexklessur á neðstu gluggunum og bananar)
- Slepptu því bara að gefa köttunum í 1-2 daga…þá redda þeir þessu ;-)
Þrífa ísskápinn (bugast bara við að hugsa um það)
- Uss, alger óþarfi, nema að fúlegg hafi sprungið þar inni. Eina ástæðan fyrir því að minn ísskápur hefur verið þrifinn EVER.
Leysa jólaseríuflækjur/Reyna að laga jólaseríurnar
- Skelltu þeim bara beint í poka og gefðu til Mæðrastyrksnefndar eða álíka sem gestaþraut.
Kaupa nýjar seríur
- Passaðu að fá í kaupbæti mann sem kemur heim til þín á þrettándanum og pakkar þeim snyrtilega niður. Af hverju heldurðu að bróðir minn fái að búa hjá mér um jólin? Af því hann er mjög klár í einmitt þeirri deild ;-)
Bóna bílinn/Þrífa bílinn að innan
- Í myrkri eru allir kettir (og bílar) gráir. Tekur engin eftir því hvort hann sé skítugur eða ekki fyrr en löngu eftir jól.
Kaupa jólatré (Tolli vill risa tré sem á að standa við stigann og ná uppá næstu hæð/Leigja kranabíl undir jólatréð
- Ef Tolli vill svoleiðis, þá skal hann bara græja þetta trédæmi sjálfur. Veittu honum refsistig fyrir hvern dag sem þetta dregst og/eða allt sem hann mun vafalaust rústa í leiðinni. Þú getur þá notað þetta sem dæmisögu öll næstu jól þegar hann fær sömu sniðugu hugmyndina.
Útbúa skemmtiatriði fyrir ættarjólaballið (ofsakvíðakast í aðsigi)
- Taktu einhvern gamlan Spaugstofusketsja (amk 10 ára gamlan, þegar þeir voru ennþá fyndnir) og leiktu hann. Klikkar aldrei.
Henda öllum af feisbúkk sem eru búnir að öllu fyrir jólin
- SAMMÁLA.
Föndra jólakortin
-Hentu bara nokkrum skrautlegum pappaspjöldum, vaxlitum og bitlausum munsturskærum í Úlf (og kettina) og leyfðu þeim að krumpast og klessast á þessu í nokkra stund. Þá ertu strax komin með ‘exclusive design’ arkir sem hægt er að sníða niður í hentuga jólakortastærð. Prentaðu út úr heimilisprentaranum stöðluðu jólakveðjuna og límdu inn í kortið og klesstu á slaufu eða álíka. Voila!
Finna heimilisföng og skrifa á öll jólakortin
-Hér er Excel sniðug græja…þá er líka hægt að bera fyrir sig tölvubilun og að “skráin” með heimilsföngunum hafi bara hreinlega bilað eða týnst…
Baka/Föndra/Brosa
- Bakaðu bara vöfflur eða e-ð álíka einfalt og klipptu niður í litla bita. Skreyttu með sultu og rjóma. Föndrið er nú þegar búið að græja með jólakortunum og það verður skammt í brosið þegar þetta er allt afstaðið.
Kaupa gjafirnar/Skrifa aftur út hærri reikninga/Pakka inn gjöfunum
- Hér væri hentugt að slá tvær flugur í einu höggi. Í staðinn fyrir að skrifa upphæðir á reikningana, skrifa bara ákveðna hluti sem þú vilt fá í staðinn, helst innpakkaða og tilbúna til gjafar. Algerlega laus við milliliðinn og vesenið!
Gefa smáfuglunum
- Sýnist þetta sumarlega veðurfar ætla að græja það fyrir þig í bili.
Fara í jólaklippingu
- Alger óþarfi, finna bara til nóg af hárspennum (þessum litlu bobby-pins) og gerast kreatív í uppsetningum.
Þrífa bæði klósettin, baðið og sturtuna (andvarp)
- Skrúfaðu bara ljósaperurnar úr ljósunum á baðherbergjunum, þá tekur enginn eftir hvort þau eru hrein eða skítug.
Ég yrði hissa ef eitthvað af þessum hollráðum myndu ekki gagnast þér og þínum næstu daga… ;-)
Knús og kveðjur
~Bimmsan
Svakalega líst mér vel á þetta. Sérstaklega að skrúfa perurnar úr svo ég fái skítblindu :D
Mjög vitur kona sagði mér eitt sinn að andlegur þroski kvenna væri mælanlegur í fjölda smáköku uppskrifta sem þær bökuðu fyrir jólin… samkvæmt þessum mælikvarða er andlegur þroski minn í hæstu hæðum !!!
Mæli með því að þú gangir í hópinn!!
Þú drepur mig Hrund ahahahahahah