Maður lenti nú oft í ævintýrum þegar maður var að ferðast með strætó í London. Einu sinni var vagninn gersamlega troðinn og við stóðum í honum miðjum og ég skildi bara ekkert í þessari hrææææðilegu fýlu sem ég fann. Og hún þokaðist nær og nær. Fyrir aftan mig stóð þá róni sem hafði ekki farið í jólabaðið, ja við skulum segja í nokkur ár. Einu sinni benti gamall karl á mig og sagði við gelgjustrák við hliðina á sér að ég væri sæt (ég dreif mig út á næstu stoppustöð bara). Í eitt skipti datt ég næstum út úr vagni þegar unglingsstrákur greip í neyðarhnappinn og opnaði hurðina á ferð. Oftar en ekki var maður í vagni þar sem einhver söng hátt og snjallt og alveg í eigin heimi og svo alveg sama um allt. Um daginn talaði eldri kona sem ég sat hjá við sjálfa sig og hló og hló og karl með 5 krakka og hund var skammaður fyrir að leyfa hundinum frekar að sitja í sæti en krökkunum.

Fór heim með strætó á föstudagskvöldið. Leið 51 úr Mjóddinni. Þetta var minnsti strætó í heimi held ég. Aðeins stærri en meðal sendibíll. Kannski er þetta svona Selfoss hnakkastyle bus – vantar bara spoilerinn og skyggðar rúður.

Ég fór í röð inní vagninn eins og fínar frúr gera í London en þá komu unglingastelpuskrípi og tróðust framfyrir mig. Og svo voru þær ekki með tilbúinn pening og allir þurftu að bíða meðan þær reyndu að telja saman klink….. í vettlingunum. Ég var pollróleg og sagði ekkert, best að verða ekki leiðinlega kellingin í bænum alveg strax. Ég borgaði 840 kr fyrir þessa reisu og þurfti að hlusta á endalausa píkuskræki og gemsasamtöl og svo rak eitt strákkvikindið við þannig að öskrin mögnuðust um helming og þennan líka fína skyndibitaprumpulyktarilm lagði um allan vagninn. Með ákveðinni hugleiðsluaðferð gat ég haldið sönsum og áran mín beið enga varnalega hnekki af þessu.
Annars hin fínasta ferð bara. Eina sem situr eftir eru áhyggjur af því að Úlfur greyið verði svona leiðinlegt útálandikrakkakvikindi þegar hann eldist. Þarf að skoða þetta aðeins betur en líst vel á svona skiptinemaprógramm til Perú eða Afríku.

Leave a Reply

You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>