Finnst eins og sumar konur viti allt og hvernig eigi að bregðast við öllu. Ég hélt að þegar ég yrði mamma þá myndi ég uppgreitast sjálfkrafa í svona übermömmu sem væri með allt á tæru og ákveðnin uppmáluð. En sagan varð eiginlega allt önnur. Í staðinn fyrir að breytast í ofurbarnalandsgribbu sem hefur skoðanir á öllu og engu varð ég óttaleg mús sem er með skitusting úr hræðslu við að gera eitthvað vitlaust.
Núna er afkvæmið lasið og búið að vera lasið alla vikuna. Þetta þykir mér svakalega slæmt og listarnir í hausnum á mér verða lengri og lengri þegar ég reyni að sofna………
• Ath. hvort við eigum næga stíla,
• Ath skiptitösku
• ef ekki þar þá veskið mitt
• ef ekki það hummm þá þarf að fara í apótek
• skipuleggja hvenær á að fara í apótek
• guð minn eini ef það er um nótt hvaða apótek er þá opið?
• Muna að taka veskið með
• hmmmm ef kortinu mínu væri nú synjað betra að hafa bara pening
• fara í hraðbanka
• best að kaupa nóg af stílum þegar komið er í apótekið og eitthvað meira sem vantar
• hvað vantar?
• dömubindi….. muna það.
• Varasalva….næstum búinn…. muna það.
• hmmmm kannski ætti ég að hringja í lækni
• finna símanúmerið hafa það reddý
• Ef ég þarf að fara með hann á ég þá að fara á Selfoss eða Reykjavík? – best að hafa smá áhyggjur af því
• Ef ég þarf að fara í Reykjavík þá fer ég í lyfju í leiðinni (ef þetta er um miðja nótt)
• muna að líta í spegil áður en ég labba út – gæti verið með maskara eða slef út á kinnar
• hmmm ætti ég að hita bílinn fyrst?
• er nóg bensín á bílnum? ohhh þoli ekki að þurfa að fara í bensínsjálfsala
• muna að hafa bensínlykilinn með
• er síminn hlaðinn ef ég festist uppá heiði?
• nú ef ég festist þar þá þarf ég að hafa mat og drykk með handa stubbanum (sem er fárveikur afturí)
• muna kennitöluna hans
• pissa – best að vera búin að pissa áður en ég legg af stað
þetta er náttúrlega bilun !!!










já … þetta er bilun …