Afsakið orðbragðið á eftir…… ég er nú soddan dama……..

Einhleyp vinkona mín stynur mikið og andvarpar yfir gömlum frænkum sem eru að gera hana gráhærða í jólaboðum, erfidrykkjum og öðru álíka skemmtilegu. Kerlingarnar spyrja hvað sé nú eiginlega í gangi með hana en hún eigi nú bara eitt barn. Hvurslags þetta sé eiginlega og barnið orðið það gamalt að það gæti verið barnapía fyrir næstu börn. Hún verði nú bara að fara að ná sér í mann blalblbllblblallbalbabbb.

Við ræddum þetta í gærkvöldi og komumst að þeirri niðurstöðu að þetta væri nú meiri helv….. forvitnin og dónaskapurinn. Hvað kemur þeim þetta við. Hún var að spá hvort hún ætti að segja að enginn vildi hana eða hún finndi engan nógu flottan. En best væri að þrykkja einhverju til baka í þær þannig að helst myndu þær nú fá slag eða allavega alvarleg andköf og hjartsláttatruflanir.

Planið er að í næstu veislu mun hún borða súkkulaði köku og kjammsa á henni meðan hún segir þeim (eftir að þær spurja hana) að það sé nú frekar erfitt að búa til börn þar sem það sé nú í tísku að rí……… í rassg……!!!

Held að einhleypir strákar séu ekki spurðir svona. Þeir eru bara spurðir út í vinnuna og hvort þeir eigi ennþá sama bílinn. Enda eiga þeir nóg af spriklandi sæðisfrumum fram undir 100 ára og í fínum málum með framleiðslu á krakkakrumpum með hjálp Viagra :p Ekki komnir á síðasta söludag eins og við kellingarnar grrrr

4 orð í belg to “Einstæð móðir – best fyrir febrúar 2010”

  1. ally says:

    Ha!!! er í tísku að………….rí….í rassg….Ha ha ha þú ert ótrúleg!

  2. sigga systir says:

    Allt það sem er í tísku einn daginn er fljótlega komið á útsölu innan skamms. Það gamla góða, þetta klassíska stendur alltaf fyrir sínu.
    Áfram trúboðar!!!!

  3. Steinunn says:

    Úff hvað mér brá … hélt þú værir að meina mig þegar ég sá titilinn (“,)

  4. Hjördís says:

    Ég gerði könnun á þessu hjá einhleypum KK vini mínum og hann er spurður að því hvort hann er ekki örugglega voðalega duglegur með börnin sín og hann er reyndar spurður að því hvort hann ætli ekki að fá sér kærsutu … en annars er það vinnan :-)

Leave a Reply

You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>