Var að finna eldgamla filmu sem var tekin á lomo vélina mína áður en hún datt í sundur. Held filman sé síðan árið 2000 eða 1999.
Flestar myndirnar voru nú ónýtar en nokkrar eru enn ok. þessi t.d. Veit einhver hvar þetta er tekið??

Við fyrstu sýn dettur manni í hug flóttamannabúðir. Hvít tjöldin, draslið, rauðakrossjeppar, og svo auðvitað litlu fátæku börnin sem eru annað hvort að veiða sér í matinn í baneitraðri tjörninni eða krækja sér í drasl til að fara með í endurvinnslu til að sjá fjölskyldunni fararborða.

2 orð í belg to “Myndagáta”

  1. Bimma says:

    Úff já þetta er auðvitað skelfilegt ástand sem skapast í Vestur-eyjunum á ári hverju. Ég hef heimildir fyrir því að baneitraða vatnið í tjörninni skipti jafnvel litum ár frá ári! Þarf bara ekki að fara að stofna hjálparsamtök strax á feisbók??

  2. Sigga Systir says:

    Hvar á ég að leggja inn og hve mikið?????

Leave a Reply

You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>