Var að kíkja á veður.is. Er orðin svoooo mikil kerling að ég er með Vegagerðina og veðrið í favorites hjá mér. Fannst nú nóg um spána á morgun en ekki skánar hún og guði sé lof að þetta nær bara fram á þriðjudag ojojojojjojjjjjj.

Það er svo dimmt og drungalegt á morgnana að ég kveiki á kerti í glugganum hjá mér til að fá smá lifandi birtu í herbergið meðan ég vinn. Lá við stórslysi í gær þegar kattarhlunkurinn ákvað að stökkva upp í gluggann, eins mikil lipurtá og hann er. Og þar sem hann er allt allt of feitur og klossaður settist hann á fína ilmkertið mitt og það kviknaði í rassinum á honum. Ég rauk til og lamdi og lamdi í rassgatið á honum til að slökkva. Hann hlunkaðist svo niður sármóðgaður yfir þessum flengingum, fór niður og fékk sér að éta.
Það er ennþá svakaleg fýla af brunnum kattarasshárum í herberginu :p










Hahaha, lenti í þessu sama um daginn, nema það var ekki sjálfur rassinn bara blettur á hliðinni…fýlan af sviðnum kattarhárum var samt svakaleg, og hárin á þessum brunabletti eru aðeins stífari en restin af feldinum. Kattakjánar :)