Hef haft ógurlega mikið að gera og lítið skrifað. Úlfur var veikur og er aftur veikur og hangir með horinn í brókunum mínum. Ég er líka mjög upptekin í megrun eins og er. Þ.e er að megra fressið okkar sem festist í kattalúgunni um daginn. Það var hræðilegt að horfa á hann – eins og að horfa á fæðingu. Hann dettur næstum úr framlappaliðunum við að troða sér í gegnum lúguna og svo situr hann fastur á belgnum og þarf að jugga sér upp og niður til að smjúga svo loksins í gegn.

Hann er semsagt kominn í mikið át-tak. Því miður er ekki til heilsuhæli hérna fyrir feit dýr eins og bollurnar sem eru á hælinu hérna í Hveró. Þannig að við Tollfríður þurfum að passa að hann borði ekki of mikið. Bleyta í matnum hans svo hann taki meira pláss í bumbunni á honum og setja hann svo reglulega út að hreyfa sig. Setti hann tvisvar út áðan og svo efst upp í stiga þar sem hann steinsefur núna (átti að skokka niður).

Þegar ég horfði á þátt um feit gæludýr um daginn þá varð mér öllum lokið. Þegar kettirnir eru orðnir svona feitir þurfa eigendurnir að skeina þá með blautþurrkum því þeir geta það ekki sjálfir !!!
Ég hef nóg með að skeina mig og svo strákinn sem harðneitar að kúka í klósett – hvað þá að ég fari að skeina kettina líka. Aumingja Gosi fyrst kveikir hann í rassinum á sér og svo er hann kominn á sérfæði og í æfingaplan. Væri ekki hissa að hann stryki að heiman ef hann myndi nenna því. Hann nennti reyndar að stela ristabrauðinu hans Úlfs í hádeginu og sleikti allt smjörið af því !

Leave a Reply

You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>