Á sunnudaginn ætlar mosófólk að setja heimsmet í knúsi. Pant ekki vera þar!!!
Mig hryllir alveg við því að vera í margmenni. Áran mín höndlar það ekki. Svo er ég skíthrædd að ég fengi frunsu eða lús hrollur……
Næsta vika á að vera einhver knúsvika, meira bullið. Hverjir finna uppá svona? Barnalandsmussur og kerlingar sem eru alltaf að senda óþolandi englapósta og væmnar barnamyndir á mann og hafa ekkert annað að gera en að keyra uppí sveit til að faðma ókunnugt fólk. Örugglega.
Held að það sé nóg að uppáhaldsdagurinn minn bolludagur sé á næsta leyti, ásamt sprengidegi og öskudegi. Svo er búið að klína á okkur valentínusardeginum líka með allskonar rómantísku veseni. Hnussss
Reyndi að útskýra bolludag fyrir útlendingunum okkar þegar við vorum stödd í bakaríinu í Glæsibæ um helgina og þau voru að spá í bollurnar í borðinu. Að reyna að útskýra þetta fyrirbæri sem eitthvað heilbrigt er næstum ómögulegt. Börnin búa til flengingarvendi og svo keppist fólk um að vakna sem fyrst til að flengja hvort annað. Bolla bolla bolla o.s.frv.
Vinkona mín útskýrði fyrir dönskum vinum sínum að þetta væri Bolledag…..
Sprengidaginn er ekkert mál að útskýra…… Blow day á fallegri ensku…. eða þannig.
Og svo öskudagur. Ja hann er nú bara orðin eins og einhver amerísk hrekkjavaka. Ég sakna öskupokanna og títuprónanna sem var hægt að beygja.
Jæja karlinn að koma heim best að setja sig í nöldurgírinn fyrst ég er byrjuð á þessu röfli.










Þá eru Vinadagar í Hafnarfirði skárri….það er meira svona fjarknús…..Gátu Mosó-ingar ekki stofnað Facebrook grúppu eða eitthvað…Þurfa þeir að hittast til að knúsast? Hvaða rugl er þetta? Geta þeir ekki bara sent keðjubréf eða eitthvað? Díses…
þið eruð nú meiri mussukerlingarnar.
Og systir góð þú ert svo margslungin og furðuleg mannvera. Þoooolir ekki margmenni en undir þér sérstaklega vel í London af öllum stöðum..
Ég er stollt af því að eiga svona spes systur.