Er komin í skúringaverkfall. Held það sé auðveldara að rífa bara parketið af reglulega. Drengurinn kemur heim og nær alltaf ALLLLLLTAF að hella einhverju í gólfið og ef það er ekki hann þá ælir kötturinn eða ég sjálf missi heila skyrdollu í gólfið. Sérstaklega erfitt var að ná bingókúlulakkrísslefi og svo gömlum banana úr gólfinu og ég tala nú ekki um límmiðana úff.
Er að reyna að siða hann til og láta hann þrífa upp eftir sig og svo fer hann reglulega í skammarkrókinn þar sem hann á að dúsa í 2 mínútur en hann heldur að hann eigi að vera þar í 2 sekúndur. Hann reyndar biður orðið um að horfa á súpunanní (Super Nanny – Jo Frost) og finnst ægilega gaman að sjá óþekku krakkana.
Hann er líka greinilega hræddur um að fá ekki nóg að borða hérna og er farinn að fela mat hingað og þangað. Ég fann um daginn svo vonda lykt og skildi ekkert í því hvaðan hún kom. Fannst ég fyrst finna hana inní stofu og svo inní eldhúsi og svo aftur inní stofu. Hélt ég væri að verða klikkuð þangað til við fundum skýringuna. Úlfur kom þrammandi með mjólkurstútkönnu og jeremííías þvílík fýla. Hann hafði semsagt fengið sér sopa af kasúldinni mjólk og helt niður á peysuna sína og í gólfið (auðvitað) þegar honum líkaði ekki bragðið. Peysunni var hent í þvottavélina og drengnum í jólabaðið.
En lyktin hélt áfram að gjósa upp þó allt væri orðið hreint og fínt…. og viti menn. Við fundum svo eitt af forðabúrum Úlfsins. Ofaní litla bílnum hans sem hann situr á og þeysist um gólfið hérna. Ekkert skrítið að lyktin var aldrei á sama stað. Ofan í skottinu var slatti af cheerios, hrökkbrauð og svo auðvitað úldna mjólkin sem hafði lekið úr könnunni hans 1700ogsúrkál ásamt bók. Hann hefur aldeilis ætlað að hafa það huggulegt.
Hérna er svo mynd af bílnum og uppvöskunardrengnum í fína dressinu sem ég bjó til handa honum, til að vera í við húsverkin.











Ég á flottasta frænda í heimi. Alltaf að búa til verkefni handa mömmu sín. Pældíðí hvað hann er duglegur. Alltaf að bralla eitthvað. Flottastur
Þetta sýnir bara að drengurinn er mjög skynsamur, sparar fyrir framtíðina, hann er bara ekki búinn að átta sig á að matur geymist … MJÖG MIS vel :-) en það kemur !!!
Brilliant gaur :)