Amma mín segir alltaf að henni líði eins og nýhreinsuðum hundi ef henni líður vel. Nú vona ég að ég verði eins og nýhreinsaður hundur eftir 24 daga. Er búin að vera í kroppahreinsun, semsagt að hætta að borða allt sem er skemmtilegt eins og glútein, mjólk, áfengi, kaffi, E-efni, skordýraeitur og þessháttar.
Þetta er í fyrsta skipti sem ég hef ekki haft neina löngun í sælgæti – HALELUUUJA !!! Á meira segja kókosbollu upp í skáp sem ég er að spá í að klessa í ramma og hengja bara uppá vegg því mér finnst þetta svo merkilegt.

Reyndar át ég einhvern bókhveitigraut í gær og í morgun. Það er álíka skemmtilegt og að háma í sig morgunblaðið. Alveg eins og skeinipappír á bragðið ojbara. Held ég sleppi þessu næstu morgna og geri eins og hin vaxtaræktatröllin og ét hrá egg og banana, allt betra en þessi hörmung.

Kötturinn hefur grennst. Hann kemst nú inn um lúguna án mikillar áreynslu þannig að hann þarf ekki á svona hreinsun að halda eins og er og er ánægður á megrunarfóðrinu.

Svo eru það auðvitað aðalfréttirnar að það eru allir að unga út börnum í kringum mig. Fyrst Frikki og Kattie vinir okkar, svo Jói og Erika í London og nú síðast í gær Elena mágkona mín og Þórir. Til hamingju með það allt saman. Ég get reyndar rétt svo munað hvaða kyn börnin eru sem fæðast þessa dagana. Get alls ekki munað hvenær þau fæddust, hvað þau voru stór, þung og allt það, nema stelpan hennar Elenu fæddist þriðja, þriðja kl þrjú – snilldar skipulag alveg :)

ps. Hrós vikunnar fá gröfukarlarnir hér i bæ. Við erum enn að drukkna í sköflum hérna og það líður orðið varla sá dagur að Tollfríður festi ekki bílinn í innkeyrslunni og endaði ég á að fara og kaupa heimsins stærstu snjóskóflu í gær – hún er svo stór og löng að ég lofta henni varla. Gröfukarlarnir okkar eru búnir að kyppa bílnum upp 3var sinnum og moka burtu mörgum tonnum af snjó og eiga þeir kærar þakkir skilið fyrir það :)

1 orð í belg to “Nýhreinsaður hundur”

  1. Tolli says:

    Gröfukallinn hefur bara þurft að kippa í okkur 2svar . Ég náði sjálfur að grafa mig út einu sinni! Rétt skal vera rétt

Leave a Reply

You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>