Þurfti að fara á spítala áðan útaf ennisholusýkingu sem er búin að malla í mér lengi lengi. Hélt ég gæti nú tæklað þetta með allskonar töfrabrögðum sjálf en allt kom fyrir ekki. Það var ekki fyrr en ég hélt að hægra augað í mér myndi annað hvort detta úr hausnum á mér eða ég myndi sjálf skafa það út með skeið, sem ég ákvað að drullast til læknis.
Fékk rótsterk sýklalyf sem eru svo uppfull af E-efnum að ég hef varla lyst á að taka þau. Afhverju þurfa að vera fleiri en eitt litarefni í pillum??? gargggg
Jæja nóg af þessu röfli og nú byrjar alvöru röflið. Ég sá langa biðröð og sá fram á bið bið bið eftir að komast að. Svo ég fór í blaðabunkann á borðinu til að finna mér eitthvað til að lesa. En það var nú eiginlega hægarasagt en gert. Ekki beint skemmtiefni sem boðið er uppá þarna. Ég endaði á að spila tölvuleik í símanum eins og gelgja í staðinn fyrir að blaða í gegnum þessar þunglyndisbókmenntir sem voru í boði.
Hérna kemur þetta í þeirri röð eins og þetta var á borðinu, allskonar tímarit og bæklingar.
Krabbameinssjúk börn, Parkinson, Uppeldi, Bólusetningar, Astmi, Verkjameðferðir, beinþynning, hættum að reykja, VIKAN mars 2009, Sjúkraþjálfun, Tímarit hjúkkunema, astmi og ofnæmi, alnæmisblað, Lions blað, ADHD fréttabréf, Geðvernd ofl. ofl.
Og þá kemur rúsínan í pulsuendanum….. efst á bunkanum var forláta barnabók, Ljóti andarunginn…………. á spænsku !










djös röfl í þér. Mér finnst bara nokkuð gott að hafa ársgamla viku. Bara nýjasta nýtt.
Og svo ertu alveg að detta í það að verða gömul kerling og þær hafa óbilandi áhuga á sjúkdómum og veikindum þannig að það er um að gera að sökkva sér í þetta og geta tekið þátt í umræðunum. Vera með það er málið.