Var að tala við Siggu systur og við erum sammála við þooooolum ekki mont á feisbúkk. Langar að lemja fólk sem gerir ekki annað en að grobba sig af armbeygjum, ræktarferðum, þrifnaðaræði og prjónaskap.
Svo ég ætla í staðinn að monnta mig hérna hjá mér bara. Montimontimonn liggaliggaláááiii.

Hver hefði trúað því að sælgætisgrísinn ég væri ekki búin að bragða sælgæti í 16 daga !!!! Erum semsagt rúmlega hálfnuð með 30 daga hreinsun á mataræði og höfum ekki svindlað neitt – og trúið mér það þurfti sko að taka til hérna.
Fundum gamlar mælingar síðan 2004 og 2005 þar sem við höfðum viktað okkur og mælt í bak og fyrir í alveg 3 vikur sýnist mér. Og guð minn eini við eigum líka svona fitubollumyndir af okkur með dagblöð og á nærfötunum, með eymdarsvip- vorum alltaf á leiðinni í át-tök. Það þarf klárlega að fara með þessar myndir í gagnaeyðingu svo enginn komist í þetta úfffff. En montrassinn hefur minnkað og ég þarf að fara að fjárfesta í þrengri herfugalla til að vera í hérna heima sveimér þá.

Reyndar er manni alveg farið að langa í eitthvað annað að borða og þá helst bara þetta allra einfaldasta. Brauð með smjöri eða kleinu – held að aumingja Úlfur hafi orðið hræddur við mig í gær þegar ég keypti handa honum kleinu og þegar ég rétti honum hana stóðu augun á stilkum og slefið út úr mér mmmmmmm kjammmmmmsikjammmssss.

Páskarnir eru nú handan við hornið…..wamúhahhaaaa

Læt fylgja með splúnkunýja mynd af mér útí garði á bikiní……eða er þetta kannski mynd af Tolla? – er alls ekki viss.

bodybuilding_girls_35

1 orð í belg to “Montrass”

  1. Tolli says:

    Er þetta ekki örugglega FYRIR myndin af mér? mér sýnist þetta vera grindverkið í Arlington Gardens þannig að það hlýtur bara eiginlega að vera…

Leave a Reply

You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>