Hver nennir að lesa svona blogg þegar þeir geta verið að lesa skýrslu rannsóknarnefndarinnar? Þetta er víst eins og besti reifari og eru nýjir glæpir á hverri síðu. Fær væntanlega verðlaun fyrir bestu glæpasögu Evrópu 2010. Svo eru auðvitað kápurnar afspyrnu flottar og fallegar og smekklegar og glæsilegar ……. winkwink oinkoink ;)
Annars hefur svakalega mikið gerst sosem. Ég fékk ennsiholusýkingu…….. manni líður eins og maður sé með blöðruhaus fullan af drasli. Fékk allskonar stera og pillur og því fylgdi ákafur skapofsi og óþol gagnvart eiginmanni, syni og öllu nálægu bara. Varð betri bæði í hausnum og skapinu en núna er þetta komið aftur svo maður veit ekki hvort ég þurfi kannski stærri steraskammt – Þá verð ég víst send eitthvað langt í burtu í einangrun til að hjónabandið lifi af.
Fórum í bústaðinn um páskana. Tolli fór og labbaði með Lalla að eldgosinu og komu til baka sem sannar hetjur að sjálfsögðu. Ég var í geðillskukasti yfir því að mega ekki fara með – hausinn á mér hefði getað gosið líka. Fór út í skóg og vældi við hestana hvað ég ætti ægilega bágt þeir hlustuðu eins og sannir vinir….. nema þeir hafi verið að vonast eftir brauði.
Úlfur kúkaði í baðið í fyrsta skipti. Og heimilið breyttist skyndilega í heilsuhælið í hveragerði með leirböðum og huggulegheitum. Hann ýtti á nuddtakkann í baðkarinu sem breyttist á svipstundu í risastóra hrærivél. Ég tók ekki mynd!!!
Fórum til London og sluppum réttsvo aftur heim. Skrítið að finna svona kominheimtilfinningu bæði þar og hérna. Fórum í afmæli, í búðir, með bílinn í skoðun, út að borða, út í sólina, oní lestarnar og hittum gamla góða vini.
Fór og hitti bæjarstjórann í Hveragerði. Hún er voða fín en ekki eins og bæjarstjórinn í Wandsworth sem ég hitti fyrir nokkrum árum. Hann var með svakalega bling bling gullkeðju um hálsinn sem náði langt niður á maga. Mér finnst að allir bæjarstjórar eigi að vera í svoleiðis, alltaf.
Fengum Au pair heim. Tengdamamma kom sá og sigraði og eldaði og þreif. Úlfur segist núna vera krúttið hennar ömmu. Það má nú deila um það eftir kúkaharmleikinn.
Búin að sá allskonar jurtum og grænmeti. Kisa pissaði oní blómapott sem ég var nýbúin að sá sumarblómum í, á nú von á heljarinnar mannætuplöntum strax í maí.
Er nú hálf stressuð yfir þessu gosi. Þori varla að horfa á veðurfréttirnar af ótta við að vindáttin breytist og allt fari á kaf hérna. Tolli veit ekki hvað áhyggjur eða stress er – heppna svín!
Já og svo átti ég afmæli í gær og varð hundgömul að utan en ekki innan. Er gömul sál fyrir svo það er ekkert hægt að eldast meira þar á bæ. Sigga systir er víst búin að lofa mér ofboðslega stórri og óhollri súkkulaðiköku – ég bíð bara spennt.
Jæja nóg í bili farin að tjékka á öskufallinu hérna úti……. Tolli er að grilla !
ps. drullist svo til að kommenta fyrst maður er að skrifa svona skýrslu hrmrmffffff (held að ég sé enn með smá stera í blóðinu) !!










Húrra, ný bloggskrif! Ef þú vilt að fólk sé duglegt að kommenta mín kæra, þá verður þú líka að halda okkur við efnið! ;-) Veit að þú átt fjölda dyggra lesenda þarna úti sem þyrstir alltaf í skemmtilegar pælingar þínar á lífinu og tilverunni. :)
Annars er ég búin að vera sjálf á svæsnum sterakúr undanfarna viku vegna bráðaofnæmis fyrir guðmávitahverju. Varð samt ekki vör við neinar skapgerðarbreytingar, furðulegt nokk þar sem þarf lítið sem ekkert til að koma mér úr jafnvægi. Kannski þetta hafi fengið útrás í almennu tuði, þar sem bloggið mitt var tekið úr saltlagningu í vikunni og blogga ég núna eins og sjálfur andskotinn. Hvort það sé eitthvað sem neinn nennir að lesa er svo allt annað mál, hehe…
Kvitti kvitt
~Bimms
P.s. Til hamingju með afmælið um daginn! Ég er alveg vonlaus í að muna eftir afmæliskveðjum á feisbúkk, ætli það sé til svona tólf spora kerfi við þessu?
Ég veit um fullt af fólki sem les bloggið þitt mín kæra en það er bara með svona reply feimni. Hún er af sama toga og að lesa inn á talhólf feimnin.
En þið eruð búin að vera aldeilis á fullu. Pældíðí ef þú hefðir ekki verið á sterunum. Þú hefðir ekki getað gert helminginn af þessu.
Þó svo að Kallinn fari aðeins meira í taugarnar á Þér þá er það nú bara góður undirbúiningur undir elli-árin.
Til hamingju með daginn og gott að þið sluppuð til Íslands…erum að krossa fingur um að við sleppum út…. 1. maí!
Hæ Hrund ég les stundum bloggið þitt mér til skemmtunar – hef ekki lesið SKÝRSLUNA ætla að gera það síðar því auknum lyfjakostnað er ekki hægt að mæta.
Fór svo á flikkið þitt að skoða myndir frá London – ooo ég væri sko til í að skella mér til London – finna almennilega mannalykt – vera fótum tróðinn – hanga í lestum – horfa á fólk – bara dingla mér með Dóra mínum. En mydnirnar þínar verða duga eitthvað frameftir sumri. Gleðilegt sumar og til lukku með daginn um daginn. kv. gulla
Eg les voda oft bloggid thitt. Eg by i UK og fannst gaman ad lesa um hvad adrir Islendingar i UK voru ad bralla. Sidan helt eg afram ad lesa eftir ad thid fluttud heim. Eg hef nu aldrei kommentad fyrr en stodst ekki matid thegar eg sa sterasoguna thina. Hef thurft ad taka nokkra sterakura og man oh man…thvilik reidi!! Eg vona ad ther fari ad renna reidin
kv
Thordis