Ég er ofboðslega mikill klaufi að mála mig (eins og ég nefndi áður) nema að setja á mig maskara. Held samt að ef maskarinn væri með innbyggðum titrara myndi ég missa augun. Nú eru nýjustu maskararnir víst farnir að titra og augnhárin verða víst bara eins og á Bamba, svo löng að það kemur rok þegar maður blikkar. Sömuleiðis eru rakvélar orðnar titrandi. Hvað ætli verði næst? Varalitur sem titrar og örvar blóðflæðið í vörunum svo maður verði mun kyssilegri eða titrandi naglalökk og plokkarar.
Meira bullið – eru þetta ekki bara dulbúin tryllitæki ástarlífsins en ekki eitthvað sem á að vera í snyrtibuddunni?

Ég hef nú alveg örugglega ekki vit á þessu, er ekki nógu mikil pæja. Ef ég set spennu í hárið eða fer úr herfugallanum segir 2ja ára sonur minn „mamma fín“ !!!

Annars held ég að þessi heimur sé orðinn vitskertur. Neytendaþörf, fegurðarskyn, peningaeyðsla o.s.frv er allt algerlega að fara yfir strikið. Ætla að kenna internetinu um hmmm eða hvað?

Leave a Reply

You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>