May
12
Úlfurinn skundaði í skólann í morgun bleyjulaus. Tókum með stóran poka fullan af auka fötum. Búinn að æfa sig heima með frábærum árangri þ.e hann hefur bara pissað á gólfið en ekki í sófann – og ekki kúkað !!! Við vorum að leggja honum reglurnar að hann ætti núna að pissa í klósettið og hann yrði að segja okkur ef honum væri mál. „Eg kannetta“ galaði hann bara og fór að horfa á sjónvarpið…… sprændi svo á gólfið!
Guð hvað ég er að verða gömul. Bráðum verð ég kerling með ungling úffff









