Sko það er ekkert hægt að vera að blogga þegar veðrið er svona gott. Og svo kom rigning og þá var maður enn glaðari og ég góndi bara á plönturnar mínar spíra og gleðjast. Er að verða meiri kerling með hverjum deginum. Ég er ekki búin að sjá Sex & the city myndina. Enda ekki nærri nógu fín í svoleiðis leiðangur þessa dagana. Er bara í skítagallanum að róta í garðinum og gróðurhúsinu og fer þess á milli inn í tölvuna og vinn og hlusta á gufuna. Gúmmískórnir og stígvélin eiga núna heiðurssess í forstofunni ásamt gamalli lopapeysu af afa og vinnuhönskum.
Reyndar er ég byrjuð að taka myndir af mér í þessum herfugöllum og er að spá í að byrja herfublogg. Nú er allt morandi í stelpum útum allan bæ að taka myndir af sjálfum sér og sýna á netinu hvað þær eru fínar og sætar og telja upp hvar þær keyptu góssið. Þetta verður mjög svipað nema upptalningin verður mjög oft sú sama hjá mér:
Gúmmístígvél úr Byko
Bláar Velúrbrækur úr Primark
Eldgamall toppur úr GAP
Lopapeysa sem afi minn átti. Trúlega prjónuð í kringum 1955. Götin á olbogunum síðan í kringum 1970.
Varasalvi úr lyfju !










Ég DÁIST að grænu (og örugglega skítugu) fingrunum þínum. Ég hef í alvörunni drepið arfa, og ég hef enga þolinmæði og ekkert skipulag þegar kemur að einhverju plöntudæmi. Dauðöfunda þá sem geta þetta og hafa aðstöðu til, en ég kaupi bara allt áfram lífrænt í búðunum og segi sjálfri mér að ég gæti þetta (en veit betur)…….
Ekki gleyma að minnast á flottu hárvörurnar sem þú notar og getur ekki verið án
Ú nýtt útlit!!!!!!
já Sigrún mín er á undan þér hohohoooo…. Reyndar er þetta bara smá byrjun. á eftir að setja í þetta myndir og drasl… og svo byrja herfubloggið á fullu. er komin með þvílíkar hörmungamyndir í það :D