Ætla að vera duglegri að setja inn allskonar myndir. Sérstaklega þar sem Sigga litla systir mín er að flýja land og auðvitað Tollinn minn líka.

Fór til Ingu ömmu minnar í gær. Hún er 103ja ára, 104 á þessu ári.
Meira um það hérna. (2. júlí).

1

2

5

3

4

6

5 orð í belg to “103ja ára”

  1. gua says:

    Sæl ég les stundum bloggið þitt þó ég þekki mig ekkert :) bara leyta uppi skemmtileg blogg. En mig rak í rogastans þegar ég sá þessar myndir, því ég þekki (þekkti) ömmu þína og man vel eftir henni í Súgandafirði hún var mjög góð við mig og kenndi mér að lesa, Villa föðursystir þin passaði mig og pabbi þinn var aðeins eldri en ég og lékum við okkur stundum saman. Gaman að þessu :) kv.gua

  2. Sigrún says:

    Falleg færsla og fallegar myndir af fallegri konu. Þú hefur verið rík að eiga svona ömmu (ég átti líka svona góða ömmu, maður er endalaust heppin að eiga þær að). Hún er líka heppin að eiga ykkur að.

  3. Sigga Systir says:

    Já við erum heppnar að eiga bestu ömmur í heimi. Þær ólíkar eins og nótt og dagur.
    Inga amma er þessi venjulega sem söng alltaf fyrir okkur gömlu barnavísurnar, kunni endalaust af spilum, köplum og bænum. Svo prjónaði hún eins og vindurinn. Hún var alltaf í góðu skapi og aldrei heyrði maður hana tala illa um nokkra manneskju. Hún er vissulega mikið breytt í dag en samt skín alltaf í gömlu góðu ömmu við og við.
    Amma Sigga er aftur á móti svona óvenjuleg amma. Sígauna blóð sem rennur um hennar æðar. Glisgjörn, göldrótt og ramm skyggn. Talar hátt og hlær mikið. Getur látið eins og api og gert grín af öðrum og sjálfri sér. Söng líka mikið og oft annarskonar vísur:) Besta saumakona hér á árum áður og útsjónasöm og ráðagóð með meiru. Bjartsýnasta manneskja sem ég þekki og trúir alltaf á Guð og lukkuna sama hvað á bjátar. Góð í gegn og alltaf gott að koma til hennar.
    Báðar þessar konur eru englar og hafa gefið okkur svo margt.
    Við erum blessaðar að eiga þær.
    Og hvor aðra :) nú er mín að verða væmin svona þegar það er að verða raunverulegt að ég er að fara af landi brott bráðum.
    Vona að ég verði líka dugleg að setja myndir og svoleiðis eins og þú og já flott nýtt look á síðunni þinni.
    kv sigga systir

  4. Bimma says:

    Yndislegar myndir af henni ömmu ykkar, þessari “venjulegu”. (Ég þekki nottla bara ofur-ættmóðurina hana Ömmu Siggu.)

    Og líst vel á þetta nýja bloggútlit, alltaf gaman að meikóver. Veitti ekki af slíku sjálf, bæði persónulega og heimasíðulega, múhaha! ;)

  5. Hrund says:

    Takk fyrir skemmtileg orð í belg gua. Þetta er svo lítill heimur :)

    Já Sigga mín nú verðuru bara væmnari og væmnari þangað til þú ert komin út…. eftir smá tíma svo þar þá verðuru svo væmin í garð fallega landsins okkar…. stuuuð

Leave a Reply

You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>