Sko vill einhver hnippa í mig í október á næsta ári og minna mig á að þá ætla ég að klára að skrifa jólakortin, kaupa allar gjafir og jólatréð og baka smákökurnar……. ég er ekki búin eða byrjuð á neinu af þessu…… og það er 22. des garrrggggg arrggggg…..

Ég ætlaði að vera über snemma í gjafapakkanum og er löngu búin að redda gjöfunum og komu þær allar til landsins 15. des í einum pakka. En….. Pósturinn er alveg að drulla uppá bak því ég er ekki enn komin með þetta í hendurnar og á eftir að pakka þessu inn og senda útum allt gaaarrrggggggggggggggggg. Pakkinn virðist nú samt vera á Selfossi samkvæmt nýjustu fréttum og búinn að vera þar síðan 19. des grrrrrrr
Er pósturinn á Selfossi ekki á kraftmiklum hnakkabíl með sportröndum og spoiler? – hann ætti að geta truntað þessu þá til mín sem fyrst.

Jæja nóg af röfli í bili.
Hérna er svo mynd af litlu systur hans Úlfs en hún var ættleidd í fyrradag.
brandalina.jpg

Get held ég ekki kallað hana Rauðhettu. Yrði þá næst að eiga þríbura og yrðu þeir kallaðir grísirnir þrír……hmmm

4 orð í belg to “Tímavél óskast gefins á gott heimili”

  1. Hjördís says:

    Til hamingju með litlu kisu.
    Kv
    Hjördís

  2. Arney says:

    Rassmína. Hún á að heita Rassmína. Eða Purka. Bara svona til heiðurs Rassmínu og Purks – okkar æskuvina.

  3. Ragnheiður says:

    Mússímúss, hvað hún er sæt!!!

Leave a Reply

You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>