Fór í sund í morgun. Geggjað (því það voru svo fáir mættir ) að fara í laugina hérna og það alveg eins og herfa þ.e með hvít grísa augnahár og ísbjarnaaugabrúnir. Hef verið að spara og ekki farið í litun eða plokkun lengi lengi. Nú fer karlinn að flytja heim þannig að það er spurning hvort maður láti slag standa og spreði í svona pyntingar.
Móðir mín og systir eru ákaflega gamlar sálir, miklu eldri en ég held ég. Allavega lesa þær báðar minningagreinarnar í mogganum fram og til baka. Þær spá í hluti sem ég hef aldrei pælt í. Þær eru t.d löngu búnar að plana að ef mamma fer í dauðadá (sem hún heldur að gerist auðvitað einhverntíma) þá á Sigga að plokka hana og halda henni fínni!!! Guð minn góður…….. ég get ekki séð um að gera sjálfa mig huggó þó ég sé með fulla meðvitund – enda var Sigga fengin í þetta djobb en ekki ég.
Ég er búin að biðja hana vinsamlegast að láta mig vita ef hún sér mig einhverntíma með langt búkonuhár á hökunni eða ef ég er andfúl eða pilsið er girt oní brækurnar…… það finnst mér vera svona nokkuð normal milli okkar systra en það er spurning um að bóka hana svona just in case. Ekki vill maður liggja einhversstaðar heiladauð og kafloðin hmmm.

Annars heyrði ég eitt besta kreppuráð sem ég hef heyrt lengi. Sé eftir að hafa ekki notað þetta í morgun í sundinu. En það er auðvitað rugl dýrt að kaupa rakvélablöð eða fara í vax svo nú þykist maður bara vera þýsk jussa. Ja ja gut gut Ich habe ein kreppenmaus……

9 orð í belg to “skegggeggjaðar konur”

  1. Ebba says:

    Jeminn Hrund!
    þú ert engri annarri lík / one of a kind – óborganlegt ;-)

  2. Áslaug says:

    hahaha!! Þú ert yndi!!

  3. Ólöf Karen says:

    Þarf að hafa samband við Siggu og bóka hana líka.. stelpugreyið verður busy með okkur allar í dái..

  4. sigga systir says:

    Þetta er bara viðskiptahugmynd….. humm:
    Tek að mér að hressa upp á útlit coma sjúklinga. Hver vill ekki líta sem best út, alltaf!!
    Plokka óæskileg andlitshár, kreisti bólur, hreynsa nasir, eyru og augnkróka. Ofl ofl.
    Mæti á staðin og geri verðtilboð.
    Hafið samband við Siggu persónulega coma stílistann. s: 6666685

  5. Hjördís says:

    Spurning hvort Sigga gæti ekki gert raunveruleikaþátt úr þessu, Coma Útlit, svo gæti hún verið með svona krúttlegan aðstoðardreng :-)

  6. sigga systir says:

    úúú góð hugmynd. Ég held að ég verði bara rík.

  7. Tolli says:

    Ich habe einen großen Kugelschreiber für ihre kreppemaus!

  8. Sigurrós says:

    Þú ert ótrúleg. Verð að stoppa hér og commenta aðeins. Er að renna í gegnum sögurnar þínar. Þarf ekki að taka bleiku pilluna í kvöld. TAKK,TAKK.

  9. Steinunn says:

    Brilljant hugmynd, ja ja. En mér finnst líka kostur að Sigga ætli að mæta á svæðið – bæði til að gera manni tilboð – og líka þegar aksjonin fer fram. Það er verra ef hún ætlar til dæmis að hreinsa innan úr nefinu á manni án þess að vera á staðnum! Datt í hug fólkið sem sólbrann innan í nefinu, sællar minningar! En Sigga fá ættingjar 2 fyrir 1 tilboð? Plís?

Leave a Reply

You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>