Kíkti í mollið áðan (Álnavörubúðina) og það var svo brjálað að gera að ég hrökklaðist út. Það var svo mikið að gera að fólk var að rífast um hver væri næstur að borga.
Held ég viti ástæðuna afhverju ég fæ innilokunarkennd inní troðinni íslenskri búð en ekki í London þar sem eru kannski milljónir í kringum mig. Íslendingar eru ókurteisir upp til hópa. Enginn hjálpar manni að opna hurð eða heldur henni opinni eða færir sig þó maður sé með kerru eða ungabarn á arminum.
Fáir segja afsakið eða fyrirgefðu þegar þeir eru greinilega fyrir manni og mús. Og oftar en einu sinni hefur búðarkerru verið þrykkt aftan í mig eða á mína kerru og enginn segir múkk bara skessast áfram. Nei nei allir bara að troða sínum rassi þangað sem þeir ætla sér með truntuskap, jafnt ungir sem gamlir.
Var í bakaríinu í gær og þá var kona komin svoleiðis á kaf inní áruna mína að ég fann andfýluna út úr henni fasta aftan á hálsinum á mér eftir að ég kom heim.
Er ekki til einhversskonar veltigrind sem ég gæti verið í þegar ég fer á mannamót?











Heyr heyr heyr…er ALLTAF að lenda í þessu og versla samt aðeins í þessum íslensku skítabúðum þegar sem allra fæstir eru í þeim. Ég held að fólk sé að láta gremju sína bitna á öðrum (vegna ástandsins) he he…þeir miða út títlur eins og okkur og dúndra svo. Ég meira að segja segi oft “ÁÁÁÁÁÁÁIIIIIIII” og bölva svo hressilega í kjölfarið, lít með haturssvip á viðkomandi sem SAMT segir ekki afsakið…Íslendingar eru dónar, upp til hópa og hafa ekki lært mannasiði. Í 8 milljón manna borg eins og London er fólk miður sín ef ÞÚ rekst utan í það og segir “so sorry”……..
Þetta er alveg stórmerkilegur assgoti. Það er til dæmis þetta fyrirbæri þegar maður keyrir inn aðrein á miklubrautinni t.d. Þar eru bílar sem ekki gefa séns, það er frekar gefið í þannig að maður nái örugglega ekki inn á aðalveginn og þurfi að nauðhemla með öllum þeim hættum sem því fylgja. Spurning um að setja af stað verkefni til að fá fólk til að sýna hvort öðru tillitssemi hvar sem það er statt, innan sem utanlands.
Held einmitt að Íslendingar hafi tekið góðærið út með ruddaskap og taka kreppunni sömuleiðis með ruddaskap.
Litla Yaris tíkin mín er komin með örugglega 5 hurðadældir eftir DÓNA sem einmitt núna er nákvæmlega sama um bílana sína því þeir EIGA þá ekki lengur!!!
Já einmitt!! Hvert er Ísland að fara. Ekkert umburðarlyndi lengur.
Ég meina ljúflings piltar meiga ekki einu sinni aka um ,nett pirraðir, um bæinn, með sprungið á bara einu og keyra svo rétt svo utaní nokkra löggubíla og sjúkrabíla, án þess að það verði svaka forsíðufrétt.
Ég meina hvað var löggan og þessir meintu “saklausu” vegfarendur að gera að abbast upp á manninn sem var bara í persónulegum erindagjörðum að reyna drepa löggu. Bíddu sagð einhver við hann: “ó só sorrý” Ekki nema von að hann sé pirraður að búa í svona dónalegu landi.
Æ nei nú á ég að fara sofa. Hlutirnir eru eitthvað farnir að snúast við í kollinum á mér.
Vá, ég er orðlaus, held ég geti litlu bætt við það sem kemur fram að ofan. :-O hehe..
Ég mæli með svona “boy in the bubble” kúlu, Hrund. Þú getur rúllað á henni í mollið, verra á heimleiðinni reyndar en kannski er búið að finna upp kúlumótor svo þú drífur aftur upp brekkuna með góssið. Þá geturu líka brussast yfir allt og alla og ef einhver fer að skammast, heyrir þú ekkert í honum, alsæl í kúlunni og alveg andfýlulaus á hálsinum. Næs.