„Ein frænka mín segir stundum við mig vooooðalega ertu hvít… ertu lasin??“
Mig langar svo að vera brún. Langar mest að vera skinkubrún og með freknur og auðvitað a.m.k 170 cm á hæð að sjálfsögðu.

Var í snyrtivörubúð í Kingston um daginn. Svo var ég að hnusa af einhverju og skoða eitthvað drasl þegar afgreiðslukonurnar fara að stinga saman nefjum og eru greinilega að tala um mig. Gjóa á mig augunum og tala í hálfum hljóðum. Ég var skíthrædd um að þær héldu nú að ég væri að stela því ég var svo herfuleg, ómáluð og huggó og veitti sko ekki af einhverju til að flikka uppá mig. Svo komu þær til mín og báðust afsökunar á hvíslinu en þær hefðu verið að tala um húðina á mér !
Ha ??? Húðina á mér? uhhhhh
Já þú ert bara eins og postulín, svo hvít og slétt !!!
Við þetta roðnaði ég alveg í klessu og varð öll flekkótt í framan, skipti litum og fékk stóra svitabletti undir hendurnar. Best að við hættum að hrósa þér sögðu þær hlægjandi og ég þakkaði pent og dreif mig í burtu.

Ég er svakalegur klaufi að mála mig. Einhverntíma átti ég kinnalit. Það tókst aldrei betur en svo að setja hann á mig (eða á stærstu kinnbein í heimi) að ég varð eins og trúður. Sömuleiðis ef ég reyni að mála mig svona töff smoky eyes… þá er eins og einhver hafi kýlt mig – með tvö glóðaraugu. Dökkan eða rauðan varalit reyni ég ekki að setja á mig veit að það myndi klínast út um allt og sérstaklega yrðu tennurnar huggulegar. En mont mont…. ég er meistari að setja á mig maskara þar sem ég er með grísa hvít augnhár og gæti gert það með rassgatinu í kolamyrkri ef ég þyrfti.

2 orð í belg to “Genalottó”

  1. Sigrún says:

    Þú ert svo fyndin he he :)

  2. [...] er ofboðslega mikill klaufi að mála mig (eins og ég nefndi áður) nema að setja á mig maskara. Held samt að ef maskarinn væri með innbyggðum titrara myndi ég missa [...]

Leave a Reply

You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>