Svona á sko vetur að vera. Hérna sést varla útum gluggana fyrir snjó. Rok og snjókoma og skafbylur, svakalega rómó alveg.
Kettirnir halda að nú sé guð að búa til klósett sérstaklega handa þeim beint fyrir framan lúguna. Þeir liggja báðir afvelta á gólfinu og nenna engu frekar en ég.
Hamarinn verður brjálæðislega fallegur í svona veðri og ég bíð eftir að sjá álfa og tröll fjúka framhjá glugganum mínum.
Fór í búðina með skóflu og kaðal svona bara til öryggis ef ég þyrfti nú að kyppa einhverjum uppúr skafli. Líklega yrðu það bollur í gönguferð af hælinu eða hnakki á sumardekkjunum, en slapp alveg við það og festi næstum sjálfa mig í innkeyrslunni á leiðinni til baka.
Hlakka til þriðjudagsins, en þá er spáð 18 stiga frosti. Er að spá í að taka hitann af húsinu svo ég geti verið í dúnskónum, föðurlandinu, jökladúnúlpunni, lúffum og með stóra prjónahúfu inni og drukkið heitt kakó og úðað í mig smákökum. Hlýt að hafa búið í Alaska í fyrra lífi eða verið mörgæs.

2 orð í belg to “Snjókonan ógurlega”

  1. dóri says:

    Hrund, þú varst Kóngamörgæs!

  2. Tolli says:

    Já sæll, eigum við að ræða þetta eitthvað? Þú getur bara farið út í bílskúr, hann er rétt fokheldur og með réttu hitastigi fyrir þig. Við Úlfur skulum sitja út í glugga með kakó og horfa á!

Leave a Reply

You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>