Nov
30
Nú vil ég biðja alla um að kveikja á kerti og hugsa til mín. Tolli er nefnilega kominn með kvef og því fylgja beinverkir frá helvíti og kannski hor og allt verður svooo ómögulegt og glatað. Búin að færa sjúklingnum kamillute og verkjalyf og hlusta á stunur og snýtur. Sé fyrir mér sófakartöflu í sömu táfýlusokkunum næstu dagana. Er búin að bjóðast til að bruna með hann á Selfoss og láta Árna Matt lóga honum – en hann treysti sér ekki út í kuldann brrrr of kalt.










æ æ þú átt erfiða daga fyrir höndum, ég skal tendra kerti við fyrsta mögulega tækifæri ;-)
En gaman að sjá að þú ert komin í bloggham mín kæra, alltaf gaman að lesa það sem þú skrifar :-)
Búin að kveikja á kerti og fara með bænirnar, þú átt alla mína samúð.
Það er nú best að halda því til haga að þetta “kvef” reyndist vera svínaflensa og hún er nú bara ekki farin nú, 14 dögum seinna! Þakka samt fyrir öll kertin og bænirnar, þetta hefði eflaust orðið villisvínaflensa án þeirra :D